Hláturinn lengir lífið.
“Miller og samstarfsmenn hans við skólann sýndu tuttugu heilbrigðum sjálfboðaliðum tvær kvikmyndir, eina gamanmynd og aðra spennuvaldandi, og prófuðu á meðan starfsemi æðakerfisins. Spjótum var einkum beint að æðaveggjum. Í ljós kom að blóðflæði í æðum sjálfboðaliðanna minnkaði til muna eftir streituvaldandi atriði í bíómyndunum á meðan blóðið flæddi mun frjálsar í æðum þeirra, sem gátu hlegið að fyndnum uppákomum í gamanmyndunum.
Að meðaltali jókst blóðstreymið um 22% þegar hlegið var og minnkaði um 35% við spennu. Þetta sýnir að hláturinn getur dregið úr hjarta- og æðasjúkdómum ef hann er stundaður nokkuð reglulega og getur þar með lengt lífið.”
dr. Michael Miller er læknir við læknadeild Maryland-háskóla í Baltimore.
Ég fann þessa frétt á mbl.
Spirulínuduft í hylki
Ég er frekar pikkí á hluti td.Epli – ég þarf að þreifa á öllum & finna hvort þau séu ekki stinn & svo verða þau að vera með réttan lit & stærð (Já mjög spes!). En svo er ég pikkí á vítamín & ef ég finn ekki hérna heima (á Íslandi) það sem mig langar í að þá sleppi ég þeim bara þangað til einhver getur tekið þau með sér heim frá USA ![]()
Um daginn fór ég í vítamínleiðangur sem tók mig tæpa 2 tíma & kom heim með einn hlut, ég semsagt fann einn hlut af nokkrum sem mig vantaði heim – Litla Ísland.
Þessi eini hlutur var spirulina en þar sem hún var ekki til í töfluformi (finnst auðveldara að gefa krökkunum þannig) að þá keypti ég spirulinuduft, rölti svo niður í Jurtaapótekið – YNDISLEG búð, mig langar í allt þar! & keypti jurtahylki. Stóðst ekki mátið & keypti í leiðinni svört piparkorn & vanillu ummmmmmm.
Svo í efirmiðdaginn eða á kvöldin að þá dunda ég mér við það að setja duftið ofan í hylkin, set þau svo inn í ísskáp & get gefið fjölskyldumeðlimum vítamínin sín morguninn eftir. Ég & Ármann setjum duftið út í vatn & þömbum !
Hérna er hægt að lesa um kosti spirulínunnar
http://aslaug.jakobday.com/blog/?p=179 <—- Ýta hérna





