Heilbrigt líf … 80/20 í dag

2

Ég ætla að telja upp allt sem ég geri eða svona meirihlutann & það sem ég man eftir.
En það breyttist ekki á einum degi & er langt frá því að vera 100% Er ekki ágætt að vera bara 80/20 :)
Í nokkuð mörg ár hef ég spáð í lífrænu, kemískum efnum, eiturefnum, heilsusamlegu & því sem að gerir okkur gott. EN ég er sko ekki lífræn út í gegn eða heilsusamleg, ég fæ mér alveg kók, nammi, óhollustumat & þannig en ég reyni eftir bestu getu að halda því frá börnunum. Gengur alveg mis vel & sérstaklega þegar við erum annars staðar en heima :)
Sjá alla færsluna »

Höfundur Áslaug | Í flokknum Heilsa | Skrifað 19-01-2010

Grapefruit seed extract

5

Þegar ég skoða blogg eða bara hvað sem er finnst mér alltaf betra að hafa myndir með.
Ég skoða frekar & kaupi hlutinn ef ég hef séð mynd af honum, finnst oft hlutir merkilegri með mynd :) HaHa
Svo ég ákvað að sýna ykkur mynd af Gse-inu merkilega :)
Þetta fæst í flestum heilsubúðum, Fræið (fjarðarkaup) Maður lifandi & heilsuhúsinu. Held að þetta sé ódýrast í Fjarðarkaup, er samt ekki 100%.

gse
gse

Höfundur Áslaug | Í flokknum Heilsa | Skrifað 11-11-2009

Allir með flensu ..

2

Það virðist vera sem önnur hver fjölskylda sé með flensu, allavega eru alltof margir eitthvað slappir.
Skrítið hvernig flensurnar ráðast á okkur svona á haustin & eitthvað fram á vetur.
Það eru svosem nokkrar ástæður fyrir því, meðal annars rafmagnið, vítamín skortur, hreyfingaleysi & fleira ….

Flestir leita strax ráða hjá læknum en Alltof Alltof fáir læknar eru eitthvað menntaðir eða hafa kynnt sér náttúrulækningar, vítamín & matarræði.
Sem er svoldið sorglegt þar sem það hefur verið sagt frá því í byrjun  Let thy food be thy medicine and thy medicine be thy food. ”
En því miður er það bara svo að maturinn í dag er svooooooo langt frá því að vera eins & hann var skapaður & inniheldur ekki þau efni sem okkur vantar dagsdaglega til að
starfa rétt & vel. Þess vegna þurfum við vítamín.

Tók saman nokkur ráð sem ég hef lesið mér til um  hvernig megi berjast við  flensurnar á góðan hátt & fyrirbyggjandi.
Einning er mjög gott að nota þetta dagsdaglega við hvers konar kvillum.

Sjá alla færsluna »

Höfundur Áslaug | Í flokknum Óflokkað | Skrifað 01-11-2009

Halló heimur!

2

Eplatré

Ekkert smá girnileg epli, hrikalega flott !!
Ef maður gæti nú labbað út í garð & týnt sér nokkur svona, það væri draumur :)

Höfundur Áslaug | Í flokknum Óflokkað | Skrifað 26-10-2009