Það virðist vera sem önnur hver fjölskylda sé með flensu, allavega eru alltof margir eitthvað slappir.
Skrítið hvernig flensurnar ráðast á okkur svona á haustin & eitthvað fram á vetur.
Það eru svosem nokkrar ástæður fyrir því, meðal annars rafmagnið, vítamín skortur, hreyfingaleysi & fleira ….
Flestir leita strax ráða hjá læknum en Alltof Alltof fáir læknar eru eitthvað menntaðir eða hafa kynnt sér náttúrulækningar, vítamín & matarræði.
Sem er svoldið sorglegt þar sem það hefur verið sagt frá því í byrjun ” Let thy food be thy medicine and thy medicine be thy food. ”
En því miður er það bara svo að maturinn í dag er svooooooo langt frá því að vera eins & hann var skapaður & inniheldur ekki þau efni sem okkur vantar dagsdaglega til að
starfa rétt & vel. Þess vegna þurfum við vítamín.
Tók saman nokkur ráð sem ég hef lesið mér til um hvernig megi berjast við flensurnar á góðan hátt & fyrirbyggjandi.
Einning er mjög gott að nota þetta dagsdaglega við hvers konar kvillum.

