Það virðist vera sem önnur hver fjölskylda sé með flensu, allavega eru alltof margir eitthvað slappir.
Skrítið hvernig flensurnar ráðast á okkur svona á haustin & eitthvað fram á vetur.
Það eru svosem nokkrar ástæður fyrir því, meðal annars rafmagnið, vítamín skortur, hreyfingaleysi & fleira ….
Flestir leita strax ráða hjá læknum en Alltof Alltof fáir læknar eru eitthvað menntaðir eða hafa kynnt sér náttúrulækningar, vítamín & matarræði.
Sem er svoldið sorglegt þar sem það hefur verið sagt frá því í byrjun ” Let thy food be thy medicine and thy medicine be thy food. ”
En því miður er það bara svo að maturinn í dag er svooooooo langt frá því að vera eins & hann var skapaður & inniheldur ekki þau efni sem okkur vantar dagsdaglega til að
starfa rétt & vel. Þess vegna þurfum við vítamín.
Tók saman nokkur ráð sem ég hef lesið mér til um hvernig megi berjast við flensurnar á góðan hátt & fyrirbyggjandi.
Einning er mjög gott að nota þetta dagsdaglega við hvers konar kvillum.
C vítamín - Virðist jafnvel hafa svipaða virkni og Tamiflu á „neuraminidase“, sem er efni sem vírusinn gefur frá sér og er nauðsynlegt til að hann getir fjölgað sér.
Eflir ónæmiskerfið og eyðinleggur ákveðin prótein í vírusum, sem þeir þurfa til fjölgunar.
Gegnir mikilvægu hlutverki við myndun bandvefs, er stór þáttur í vexti og heilbrigði æða, beina, góms og tanna ásamt því að auka frásog járns, hjálpar sárum að gróa og eykur viðnám líkamans gegn sýkingum. Vinnur gegn ákveðnum tegundum krabbameins, vinnur gegn hjarta- og æðasjúkómum, eykur viðnám líkamans gegn sýkingum, dregur úr ófrjósemi karla.
Selen – eykur glutathion, Frumefnið selen (Se) er eitt hinna lífsnauðsynlegu snefilsteinefna sem mannslíkaminn þarf á að halda.
Það eru að minnsta kosti 25 mismunandi selenháð prótein þekkt í líkamanum, sem ganga oftast undir nafninu selenoprótein, en virkni einungis u.þ.b. 14 þeirra er þekkt. Hafa þau meðal annars þýðingu fyrir vöxt, starfsemi ónæmiskerfisins og frjósemi.
Zink – gerir T frumurnar sprækari og eflir ónæmiskerfið. Viðheldur eðlilegri sjón, fyrirbyggir kvef, húðsjúkdóma, ófrjósemi, alkóhólisma og magasár. Virkjar heilann, Dregur úr matarlyst, hreinsar lifrina, sindurvari, dregur úr lykt- og bragðtruflunum hjá eldra fólki, hraðar græðslu sára.
D vítamín – & taka inn nóg af því
Þar sem sólin hjá okkur sést kannski í 6 daga á ári … HeHe
Nauðsynlegt til að stýra kalk og fosfórbúskap líkamans, nauðsynlegt fyrir uppbyggingu beina þar sem það örvar frásog kalks í meltingarvegi, stuðlar að eðlilegum kalkstyrk í blóði. Fyrirbyggir krabbamein, sykursýki af gerð eitt (hjá ungbörnum), sjálfsónæmissjúkdóma og stuðlar að auknum vöðvastyrk og þannig dregið úr líkunum á að fólk detti og beinbrjóti sig.
Einkenni D-vítamínskorts : beinkröm, tannskemmdir og kyrkingslegur vöxtur, lystarleysi, þróttleysi, vöðvaslappleiki, önuglyndi, ótímabær öldrun og beinþynning. Þegar skorturinn er kominn á alvarlegt stig verða beinin mjúk og aflagast. Skortur á D-vítamíni er talinn gera karla veikari fyrir krabbameini í blöðruhálskirtli og ristli en konur veikari fyrir brjóstakrabbameini.
Angelica frá Saga medica (Ætihvönn)
GSE (grape fruit seed extract) - Náttúrulegt sýklalyf . inniheldur mikið af C- og E-vítamínum og bíóflavónódum, sem eru andoxunarefni og vernda frumur líkamans.
Náttúruleg úthreinsunaráhrif fyrir líkamann og eflir og verndar ónæmiskerfið gegn innvortis og útvortis sýkingum. Einnig hjálpar það að koma á ákjósanlegu sýrustigi í líkamanum og er því einstaklega gagnlegt við Candídasveppasýkingu.
Innvortis hefur það reynst vel m.a. við meltingarfærakvillum, niðurgangi og matareitrunum. Það ræðst gegn bakteríusýkingum, sveppasýkingum og jafnvel er talað um að það ráði við sumar veirusýkingar sem pensilín gerir ekki, þrusku, sýkingu í gómi og síþreytu. Einnig við kvefi og flensum, hálsbólgum, eyrnabólgum og ennis- og kinnholubólgum, bólum, fótasveppum, sýkingum í húð, húðsveppum, sárum, vörtum, brenninettluútbrotum, flösu, frunsum, hárlús, hlaupabóluútbrotum og sprungnum vörum.
Einnig er hægt að nota þetta á liggur við ALLt! Gott fyrir líkamann & umhverfið, ég hef notað þetta til að þrífa á heimilinu, þrífa andlitið,
nota sem munnskol, þrífa ávexti, sótthreinsa & margt fleira.
Semsagt ALLRA meina bót !!
Hómópatía – Remedíur.
Ilmkjarnaolíuúði - Ilmkjarnaolíuúða er hægt að nota til að úða alls staðar í loftið í kringum þig. Nokkrar góðar olíur er hægt að blanda saman.
Listinn er miklu lengri & stærri, ég á td. eftir að telja upp Súperfæðuna Spirulinu & Chlorellu.
Eins væri sniðugt að telja upp hvað gerist í líkamanum ef & þegar okkur skortir þessi efni.
En sjálfri mér finnst leiðinlegt að lesa of langa pistla/blogg svo ég kem fljótlega með meira efni um þetta ![]()
Ef það eru einhverjar spurningar að þá endilega commentið þið bara & ég reyni að svara

Vá, flott:) Hvar fær maður þetta GSE? Heilsubúðunum?
Vá það er ekkert annað. Til hamingju með vefinn ! Virkilega flott hjá þér… Góð lesning, fínt að hafa einhvern sem hugsar um heilsuna manns fyrir mann
Meira svona…