Heilbrigt líf … 80/20 í dag

2

Posted by Áslaug | Posted in Heilsa | Posted on 19-01-2010

Ég ætla að telja upp allt sem ég geri eða svona meirihlutann & það sem ég man eftir.
En það breyttist ekki á einum degi & er langt frá því að vera 100% Er ekki ágætt að vera bara 80/20 :)
Í nokkuð mörg ár hef ég spáð í lífrænu, kemískum efnum, eiturefnum, heilsusamlegu & því sem að gerir okkur gott. EN ég er sko ekki lífræn út í gegn eða heilsusamleg, ég fæ mér alveg kók, nammi, óhollustumat & þannig en ég reyni eftir bestu getu að halda því frá börnunum. Gengur alveg mis vel & sérstaklega þegar við erum annars staðar en heima :)

Allt sem ég kaupi er laust við öll e-efni  & öll aukaefni.
ef ég drekk gos að þá drekk ég  venjulegt gos í staðinn fyrir þetta sykurlausa sem er með aspartami.
Ég baka bara úr grófu & fínu spelti, nota vínsteinslyftiduft.
Reyni að kaupa spelt brauð, spelt pasta & spagetti , ef að spelt er ekki í boði að þá vel ég heilhveiti.
Nota hrein krydd & tenginga (grænmetis).
Dósamatur finnst mér ógeðslegur, hafið þið spáð í því hvað hann geymist lengi ??
Kaupi stundum baunir í krukkum (lífrænar)& keypti á tímabili barnamat til að grípa í á ferðinni fyrir börnin þegar þau mátti ekki fá jógúrt eða skyr.

Skyr & jógúrt helst lífrænt, en á Íslandi er það alltof dýrt, svo að ég kaupi hreinar vörur, ekki búið að bæta neinu í skyrið, ef maður vill bragð af skyrinu að þá bætir maður hreinni sultu út í & ef það er ekki nóg að setja þá smá Agave síróp út í (1-2 dropa). Einnig er hægtað sjóða & mauka ávexti & setja út í. Reynar kaupi ég jógúrt frá Biobú en skyrið frá MS eða Kea.

Ávextina & grænmetið ættum við að reyna að hafa lífræna, allavega þá sem við getum fundið, úrvalið á Íslandi er nú ekki mikið en erlendis ætti þetta að vera lítið mál. Best er að finna sér nokkra bændur sem selja lífrænt eða án eiturefna (sumir hafa ekki efn á því að sækja um að lífræna vottun ).
Ég versla þar sem ég get af bændum (oftast), þá fá þeir meir fyrir sína vöru & ég veit nákvæmlega hvað varan er gömul & hvað er búið að gera við hana.
Kjötið hérna á Íslandi er mjög gott & ég kaupi yfirleitt kjöt af Kjöthöllinni. Ég hef keypt lífrænt ræktað lambakjöt en eins & svo margt hérna á Íslandi að þá var það svoldið dýrt en rosalega gott kjöt.
Erlendis myndi ég kaupa beint af bónda, bændamörkuðum eða af þekktu lífrænu merki.
Lambakjöt, nautakjöt & fuglakjöt ..  Það er hrillilega að sjá aðferðirnar sem eru notaðar á dýrin :(
Ég er samt farin að halda að það borgi sig að borða lífrænt kjöt á Íslandi líka.
Hægt er að kaupa lífrænt nauta & lambakjöt en fulgakjötið er ég ekki viss um. Reyndar langar mig lítið að borða fuglakjöt eftir að ég hef séð meðferðina á dýrunum fyrir & við slátrun. Veit ekki hvernig þessu er háttað á Íslandi, eitthvað sem maður þyrfti að skoða.

Fiskurinn ætti alltaf að vera viltur & að hafa lifað frjálsu lífi eins & öll dýr.

Þvottaefni, sápur & hreinsiefni.
Ég hef ekki notað “venjulegt”, set venjulegt inn í sviga þar sem mér finnst ekkert venjulegt við eiturefnablandaðar sápur eða þvottaefni. En allavega, ég hef ekki notað þannig í mörg ár.
Ég nota lítið þvottaefni & ekkert mýkingarefni þótt það sé hægt að fá það efnalaust.
Sápur nota ég ekkert á krakkana,  einu sinni í viku eða sjaldnar nota ég sápur í hárið á þeim & þá bara pínu lítið, það er alveg nóg að nota bara vatnið, ef maður venur ekki hárið á sápu að þá verður það ekki feitt & skítugt.
Hreinsiefni á íbúðina nota ég ekki heldur, ég hef notað GSE á flesta hluti eða hreinsiefni sem eru án kemískra efna.
Ég hef notað bæði Dr.Hauska, Logona & Sante & Ecover.
Sólarvörnin á að vera lífræn & án kemískra efna, sólarvarnarefni hafa mælst í þvagi nokkrum klukkustundum eftir að vörnin var borin á …  Sólarexem má einnig rekja til efnanna í vörninni.
Ég hef notað Aubrey Organics & Sante.

Dr.Hauska hefur verið í uppáhaldi þegar kemur að húðvörum, ég nota skrúbbkrem, andlitssprey & dagkrem frá þeim. Einnig er ég að prufa íslensk krem sem koma vel út, hingað til :)
Maður ætti að stykja íslenskt þegar færi gefst.

Jæja í bili man ég ekki meir, ég kem þá með það seinna ef eitthvað gleymist :)
Endilega spyrjið mig bara út í eitthvað ef ykkur vantar eitthvað eða þurfið hjálp með þennan frumskóg .
En eins & ég hef sagt áður að þá á maður að reyna að sleppa öllum e-efnum í vörum, oft getur maður valið um 2-3 vörur & maður tekur þá sem er með minnsta innihaldið.
Í raun er þetta ekkert mál, sérstaklega ekki erlendis :) HeHe

Hérna koma nokkrar síður á vörur sem ég nota & hef notað, eða skemmtilegar & fróðlegar síður.
Hægt er að lesa allt um vörurnar þeirra á síðunum. Einnig er gott að googla það sem maður vill lesa um, bæði kemur eitthvað upp á íslensku & ensku.
Mjög gott er að finna sér netverslun & versla af þeim.
Ótrúlega mikið magn af heilsudóti er á Facebook. Þar getur maður fundið sér grúppur sem koma með allt það nýjasta í heilsugeiranum, hvort sem það er matur, vítamín, dót eða eitthvað annað.

www.aslaug.jakobday.com
www.mercola.com
www.madurlifandi.is
www.yggdrasill.is
www.himneskt.is
www.graenihlekkurinn.is
www.frulauga.is
www.aubrey-organics.com
www.drhauschka.com
www.logona.co.uk/
www.santecosmetics.co.uk

Comments (2)

Frábært blogg, fínt fyrir imba eins og mig sem hugsa ekki nóg um þetta. Meira svona pls…!

Takk fyrir það … Ég var beðin um smá hjálp um daginn í þessum efnum svo ég ákvað að setja þetta hérna inn líka.
Jamm ég þarf að reyna að koma mér í blogg gír :)

Write a comment